Mímir veitir fyrirtækjum þjónustu og ráðgjöf um allt sem snýr að því að efla mannauð sinn með árangur að leiðarljósi.
Hjá Mími er boðið upp á öfluga þjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki til að efla mannauð með árangur að leiðarljósi. Þjónustan byggist á gildum Mímis: fagmennsku, framsækni og samvinnu.
Við leggjum áherslu á einfaldar leiðir sem stuðla að árangri í rekstri og aukinni starfsánægju. Áhersla er lögð á að styðja stjórnendur við þarfagreiningar fyrir fræðslu, stefnumörkun og uppbyggingu mannauðs í takt við stefnu fyrirtækisins með fræðslu að leiðarljósi.
Styrkir í boði
Fyrirtæki sem greiða iðgjald í starfsmenntasjóði/-setur geta sótt um styrki til starfsmenntunar fyrir starfsmenn sína eða vegna námskeiða sem starfsmenn sækja. Upphæð styrkja fer eftir stéttarfélagsaðild starfsmanna. Reglur sjóðanna eru mismunandi. Frekari upplýsingar eru á vefsíðu Áttunnar
Sjóðir veita meðal annars styrki til að greina fræðsluþarfir hjá fyrirtækjum og niðurgreiða námskeið. Auk þessa getur starfsfólk sótt um einstaklingsstyrki hjá flestum sjóðum stéttarfélaga sinna.
Nánari upplýsingar um ráðgjöf og þjónustu við fyrirtæki: [email protected]
Við hlökkum til að heyra í þér
Fyrirtæki sem greiða í starfsmenntasjóð geta sótt um styrki til starfsmenntunar eða námskeiða fyrir starfsmenn. Upphæð styrkja fer eftir stéttarfélagsaðild starfsmanna og reglur sjóðanna eru mismunandi. Sjóðirnir geta styrkt þarfagreiningu og niðurgreiðslu námskeiða. Starfsmenn geta einnig sótt um einstaklingsstyrki hjá stéttarfélögum.
Frekari upplýsingar eru á vefsíðu Áttunnar.

Hjá Mími eru allar spurningar kærkomnar, taktu upp símann og hringdu, sendu póst eða komdu í heimsókn.
Sími 580-1800
Netfang [email protected]
Heimilisfang Höfðabakki 9, 110 Reykjavík