Hjá Mími geta fyrirtæki fengið aðstoð við að hæfnigreina störf og útbúa starfaprófíla. Vel skilgreindir starfaprófílar nýtast fyrirtækjum við margt eins og ráðningar, starfsþróun, innleiðingu á jafnlaunastaðli, nýliðaþjálfun og frammistöðumat. Fyrirtæki geta sótt um styrki til verkefnisins hjá starfsmenntasjóðum og aðstoða sérfræðingar Mímis við umsóknarferlið.
Starfaprófíll inniheldur:
Sérfræðingar hjá Mími hafa réttindi til þess að vinna hæfnigreiningar starfa eftir viðurkenndri aðferð sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur innleitt hér á landi. Aðferðin er gagnleg og skilvirk leið til að koma auga á nauðsynlega hæfni fyrir starf. Persónuleg hæfni er ekki undanskilin en hún er talin ein af mikilvægur hæfniþáttur hjá öflugu starfsfólki.
Aðferðarfræðin sem er notuð byggir á því að skilgreina starfsgreinar sem heild og því endurspeglar hver starfaprófíll starfið eins og það er almennt á íslenskum vinnumarkaði. Útfærsla starfsins er með mismunandi hætti hjá ólíkum fyrirtækjum.
Greiningarvinna fer fram á þremur vinnufundum með 10–20 þátttakendum úr atvinnulífinu sem þekkja vel til starfsins eða starfsgreinarinnar.
Afurð vinnunnar er skilgreining starfsins og helstu viðfangsefni auk lýsing á þeirri hæfni sem skiptir megin máli í viðkomandi starfi. Afurðina er hægt að nota við hönnun og þróun náms fyrir viðkomandi markhóp eða sem hvata til starfsþróunar.
Sjá nánar: www.frae.is