
Mímis konsultantas per pusryčių susitikimą VIRK
Mímir á í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingu og fór Hlín Rafnsdóttir náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri á morgunverðarfund VIRK sem kallaðist Atvinnulífið og nýjar leiðir í forvörnum. Hjá Virk er unnið markvisst að því í samvinnu við fyrirtæki að tengja saman rétt fólk við rétt störf. Fjallað var um mikilvægi hlutastarfa hvað varðar að koma til móts við fólk með skerta starfsgetu og hver ávinningur slíkra ráðninga er fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Forvarnarvefurinn www.velvirk.is var kynntur en þar geta einstaklingar á vinnumarkaði leitað sér ráðgjafar með það að markmiði að koma í veg fyrir að falla út af vinnumarkaði um lengri eða skemmri tíma vegna heilsubrests.







