Anna Björk Elkjær Emilsdóttir í viðtali á Stöð 2 um námið – hún útskrifaðist úr Færni á vinnumarkaði í desember 2024

Įgūdžiai darbo rinkoje

Þann 8. september hefst á ný námsleiðin Færni á vinnumarkaði (smiðja 4) sem byggir á starfstengdri námskrá framhaldsfræðslunnar. Verkefnið er samstarf Mímis, Vinnumálastofnunar og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er ætlað fullorðnum með skerta starfsgetu sem vilja komast á vinnumarkað. Námið felst í 70 klst. fræðslu hjá Mími auk 110 klst. vinnustaðanáms.

Í náminu er lögð áhersla á að efla almenna starfshæfni og undirbúningur fyrir vinnustaðanámið. Nemendur gera einnig ferilskrá og kynningarbréf og fá auk þess einkaviðtal hjá náms- og starfsráðgjafa Mímis. Við útskrift flytja þátttakendur kynningu um þjálfun sína á vinnustaðnum. Auk viðurkenningar fyrir þátttöku í náminu fá nemendur afhent Fagbréf atvinnulífsins við útskriftina sem er dýrmætt skjal þegar sækja þarf um starf.

Kennari hópsins verður Kristín Ólafsdóttir.

Með fréttinni fylgir mynd af Önnu Björk Elkjær Emilsdóttur í viðtali á Stöð 2 um námið – hún útskrifaðist úr Færni á vinnumarkaði í desember 2024

Höfðabakki 9

110 Reikjavikas

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Darbo laikas: darbo dienomis nuo 8:00 iki 16:00

 

Leit