Staðnám
Vorönn 2026

Íslenska

Íslenska 1 (A1.1)

Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og öruggu skref í að læra íslensku.

Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Við leggjum áherslu  á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Höfðabakki 9 og fjarnám
40 klst.
Verð59.500 kr.

Námskeið framundan

Heiti Dagar Dags. Tími Staðsetning Verð
Icelandic flag
Íslenska 1
Mán og mið 8. apr 2026 - 22. jún 2026 19:40 - 21:50 Staðnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska 1
Laugardagur 11. apr 2026 - 13. jún 2026 12:10 - 13:30 Staðnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska 1 - hægferð 1.hluti
Mán til fim 13. apr 2026 - 19. maí 2026 09:10 - 11:20 Staðnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska 1 - hægferð 2.hluti
Mán til fim 13. apr 2026 - 19. maí 2026 09:10 - 11:20 Staðnám 59.500 kr. Skrá mig
Ukrainian flag Icelandic flag
Íslenska 2 fyrir úkraínskumælandi
Mán, mið og lau 25. apr 2026 - 10. jún 2026 17:10 - 19:20 Staðnám 59.500 kr. Skrá mig

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 1 er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 1 er byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.  Enska er notuð sem millimál í kennslunni.

Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk  aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. 

 

Læra stafrófið, framburð og grunnorðaforða: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Enska er notuð sem millimál í kennslunni ef þörf krefur. Þátttakendur þurfa að kunna að lesa og skrifa latneskt letur og skilja smávegis í ensku.

Sérsniðin lausn fyrir fjölbreytta hópa: Fyrir þau sem hafa ekki enskukunnáttu er boðið upp á Íslensku 1 – fyrri hluti (hægferð) eða námskeið fyrir sérstaka tungumálahópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins.

  • Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  • Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit