Staðnám
Haustönn 2026

10. sep 2026 - 26. nóv 2026

Japanska 1 og 2

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref  í að læra japönsku og byrja að tala !

Á þessu námskeiði tekur þú saman stig 1 og 2.

Þú færð  góðan grunn  í málinu  og  þjálfar skilning og tal  auk þess að byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Þú færð sjálfstraust  til að vaxa og  blómstra í tungumálinu.

10. sep 2026 - 26. nóv 2026

Fimmtudagar kl. 17:10-19:20
Höfðabakki 9
24 klst.
Verð90.000 kr.

Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku og á því er lögð áhersla á hnitmiðaða kennslu.

Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa framburð og færni í samskiptum.

Að læra að tjá þig  og eiga samskipti á japönsku

Að byggja upp orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi

Að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði, meðal annars þátíð

Að læra að lesa og skrifa 30 kanji stafi

Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum í Japan

Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á japönsku og getu til að nota  hagnýtan orðaforða af meira öryggi.

Kennarinn notar ensku til útskýringar í kennslunni.

Kennslubókin Genki I (kaflar 3-4) er notuð.

Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.

Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit