Tónlist er áhrifaríkt verkfæri í umönnun fólks sem öll geta nýtt sér sem starfa við umönnun fólks á fjölbreyttum starfsvettvangi.
Tónlist hefur verið hluti af mannlegri tilveru frá upphafi. Hún snertir við fólki á ólíkan hátt og er oftar en ekki uppspretta gleði og vellíðunar.
Á námskeiðinu er þér kennt að nýta tónlist sem hluta af samskiptum og umönnun aldraðra og fatlaðra. Tónlist getur jafnframt verið áhrifarík leið í umönnun einstaklinga með heilabilun.
Kennt er hvernig þú getur notað spilunarlista á markvissan máta í umönnunarstörfum þínum.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Starfsfólk í umönnunarstörfum, t.d. í starfi með fötluðum, í heimahjúkrun og á hjúkrunarheimilum.
Námskeiðið hentar einnig fyrir aðstandendur fólks með heilabilun.
Þátttakendur fá sendan tölvupóst með öllum helstu upplýsingum viku fyrir námskeiðið.
Lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeiðið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800