Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra sænsku og byrja að tala sænsku!
Á þessu námskeiði tekur þú bæði stig 1 og 2.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning, framburð og tal. Auk þess byggir þú upp lesskilning, orðaforða og málfræði og þjálfar færni í ritun á fjölbreyttan hátt.
Námskeiðið er ætlað byrjendum í sænsku og á því er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreytta færni í málinu.
Markmiðið er að byggja upp orðaforða og málfræði og þjálfa skilning, tal, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt.
Námskeiðið er sniðið að þörfum nemenda hverju sinni. Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni. Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í sænsku.
Að læra að tjá þig með einföldum hætti og eiga samskipti á sænsku
Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám og nýtist í daglegu líf
Að kynnast menningu og lífsháttum í Svíþjóð
Að læra og undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
Að þjálfa lesskilning, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt
Við lok námskeiðsins muntu geta átt samskipti á sænsku og búa yfir og geta notað hagnýtan orðaforða.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni.
Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í málinu.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.
Endereço de e-mail [email protected]
Telefone 580 1800