19. Mai 2026 - 23. Jun 2026
Á þessu námskeiði tölum við spænsku!
Þú munt halda áfram að þjálfa talað mál og byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.
19. Mai 2026 - 23. Jun 2026
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í spænsku eða hafa lokið spænsku 1. Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á talað mál og samskipti á spænsku.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Að læra enn betur að tjá þig og eiga samskipti á spænsku
Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
Að halda áfram að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum spænskumælandi landa
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á spænsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Allt námsefni er á rafrænu formi.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgangs að tölvu.
Þátttaka krefst sjálfstæðis í námi.
Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.
Endereço de e-mail [email protected]
Telefone 580 1800