Á námskeiðinu heldur þú áfram að bæta við íslenskuþekkingu þína.
Þú eykur fjölbreyttan orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á ýmsan hátt. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 5 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 4 með góðum árangri.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 5 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Heftið Íslenska fyrir 5. stig er notað, auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3 og 4 (160 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á fimmta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.
Endereço de e-mail [email protected]
Telefone 580 1800