Conselhos

Mímir veitir fyrirtækjum þjónustu og ráðgjöf um allt sem snýr að því að efla mannauð sinn með árangur að leiðarljósi.

Persónuleg og fagleg ráðgjöf

Náms- og starfsráðgjafar Mímis veita persónulega og faglega ráðgjöf og hjálpa þér að átta þig á möguleikum þínum. Við vinnum með þér að því að:

  • Setja þér markmið
  • Kanna styrkleika þína
  • Finna leiðir sem henta þér út frá aðstæðum þínum

Náms- og starfsráðgjafar Mímis:

Veita leiðsögn um nám og skipulag í námi

  • Við aðstoðum þig við að finna námstækifæri sem henta þér, hvort sem er í framhaldsnámi eða starfsnámi. Einnig veitum við leiðsögn um góða námstækni og hvernig má skipuleggja sig til að ná sem bestum árangri í nám
Styðja við starfsleit og umsóknarferli
  • Við aðstoðum við gerð ferilskrár og kynningarbréfs, undirbúning fyrir atvinnuviðtöl og skipulag starfsleitar.
Útskýra ferlið við raunfærnimat
  • Við útskýrum hvað raunfærnimat felur í sér, hverjir geta nýtt sér það og hvernig ferlið gengur fyrir sig. Við aðstoðum einnig við undirbúning og skráningu í raunfærnimat.

Para quem?

Ráðgjöfin er fyrst og fremst ætluð fullorðnum með stutta formlega skólagöngu og er fjármögnuð af Fræðslusjóði.

Viðtöl við markhóp framhaldsfræðslunnar eru einstaklingum að kostnaðarlausu.

Ráðgjöfin er trúnaðarmál og opin öllum 18 ára og eldri.

Bóka viðtal með náms- og starfsráðgjafa

Mimir

Alguma dúvida?

Na Mímir, todas as perguntas são bem-vindas. Ligue, envie um e-mail ou passe por cá.

Endereço de e-mail [email protected]

Telefone 580-1800

Endereço Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Leit