Posicionamento
Semestre de outono de 2026

Árabe islandês

Íslenska, atvinnulíf og samfélag (A1.2)

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku en það er framhald af námskeiðinu Að lesa og skrifa á íslensku. Þú heldur áfram að byggja grunn í málinu og efla sjálfstraust til að nota tungumálið.

Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.    Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu, auk fræðslu um íslenskt atvinnulíf.

Semestre de outono de 2026
Höfðabakki, n.º 9
O professor fala árabe.
95 horas.
Preço46.800 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Kennarinn talar arabísku. Námskeiðið Íslenska, atvinnulíf og samfélag  er námskeið á stigi 1 framhald/stig 2 hægferð í íslensku.

Á námskeiðinu er haldið áfram að byggja upp grunnorðaforða í íslensku með áherslu á skilning, lestur, tal, ritun og hlustun. Farið er hægt yfir námsefnið og lögð áhersla á endurtekningar með fjölbreyttum og hagnýtum leiðum.

Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu.  Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.

Námskeiðið skiptist í 67 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundir af fræðslu um atvinnulífið og 12 klukkustundir af sjálfseflingu, alls 95 klukkustundir.

Íslenskunámið er framhaldsnámskeið í íslensku  á stigi A1.1-A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum  . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 og 2 er notað að hluta auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. Einnig er notað sérhæft efni til þjálfunar í lestri, hljóðfræði og ritun.

Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.

Námskeiðið er kennt á arabísku og íslensku.

 

Læra stafrófið og framburð: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku og þjálfun í íslenska hljóðkerfinu.

Þú byggir upp grunnorðaforða með því að nota myndir og orð á áhrifaríkan hátt.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.

Þú færð þjálfun í grunnatriðum í lestri og skrift einfaldra orða og setninga. Þú æfir einnig að skrifa einföld orð og grunn persónupplýsingar á rafrænan máta.

Þú æfir þig að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum.

Málfræði er kynnt á mjög einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill halda áfram að læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla samskipti og sjálfstraust.

O público-alvo da formação contínua, segundo o Conselho de Administração do Fundo de Formação. Termos e Condições do Fundo para a Educação

Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.

Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.

O curso é subsidiado pelo Fundo para a Educação, com o objetivo de garantir a igualdade de acesso e promover a aprendizagem entre adultos.

Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár FA má nálgast hér

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Precisa de ajuda?

Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.

Endereço de e-mail [email protected]

Telefone 580 1800

Conselhos na Mímir

Leit