Náms-og starfsráðgjafar Mímis aðstoða einstaklinga á vinnumarkaði við að taka ákvarðanir e þróa náms- eða starfsferil. Þeir veita einnig þjónustu vegna raunfærnimats
Ráðgjöfin felst í að:
Nánari upplýsingar um ráðgjöf og þjónustu við fyrirtæki: [email protected]
Við hlökkum til að heyra í þér
Starfsþróun er mikilvæg til að vaxa e þróast í starfi. Hún snýst fyrst og fremst um að kynna sér og móta nýjar leiðir við að sinna núverandi starfi og verkefnum í síbreytilegu umhverfi, fremur en að skipta um verkefni eða starfsvettvang.
Stundum snýst starfsþróun um að fara í nám og bæta við sig þekkingu á ákveðnu sviði.
Markmiðið með starfsþróunarráðgjöf er að aðstoða fólk við að finna aukna vellíðan og virði á vinnustað sínum og vinnumarkaði almennt.
Starfsþróunarráðgjöf á vinnustað er í samstarfi við vinnuveitendur. Áherslan er á leiðsögn og ráðgjöf í samtölum þar sem færni og hæfni hvers og eins er í fyrirrúmi til að aðlaga sem best að verkefnum innan og utan vinnustaðar. Niðurstaðan er betri líðan og aukin hæfni starfsfólks auk meiri gæða í starfsemi fyrirtækisins.