
Curso de islandês 1 – curso de fim de semana
Síðastliðinn laugardag útskrifaðist hópur úr námskeiðinu Islandês 1 með stolti og gleði. Nemendurnir voru 18 talsins og öll luku námskeiðinu og fengu skírteini. Þau lærðu um íslenska menningu, daglegt líf og auðvitað tungumálið sjálft. Þau nutu hverrar mínútu af námskeiðinu og ætla að halda áfram að læra með sama kennara á stigi 2.
Við óskum þeim góðs gengis í áframhaldandi námi hjá Mími.








