Raunfærnimat

Hvað er raunfærnimat?

Raunfærnimat þýðir að fá þá færni sem þú hefur þegar tileinkað þér metna sem nám eða starfsreynslu. Raunfærnimat er einnig leið til að styðja þig við að komast áfram í námi eða starfi.

Þú metur reynslu þína í samstarfi við ráðgjafa og fagaðila. Niðurstöður matsins geta stytt nám eða hjálpað þér að fá viðurkenningu á þekkingu sem þú hefur aflað þér í gegnum líf og störf. Þannig getur raunfærnimat orðið stökkpallur fyrir frekara nám eða opnað ný tækifæri í starfi.

Fyrir hverja er raunfærnimat?

Raunfærnimat hentar sérstaklega fullorðnum sem hafa ekki lokið námi á framhaldsskólastigi en hafa þó dýrmæta reynslu.

Raunfærnimat hjá Mími er fyrir einstaklinga 23 ára og eldri sem hafa a.m.k þriggja ára starfsreynslu úr því starfi sem meta skal.

Við bjóðum raunfærnimat fyrir:

Raunfærnimat fyrir leikskólaliða metur reynslu, þekkingu og hæfni á starfi í umræddri grein. Starfsvettvangur leikskólaliða snýst um umönnun, uppeldi og menntun leikskólabarna í samræmi við markmið aðalnámskrár fyrir leikskóla og einstaka skólanámskrár.

Leikskólaliðar taka þátt í daglegu starfi leikskóla og sinna fjölbreyttum verkefnum við að leiðbeina börnum við leik og störf.

Hér er skimunarlisti fyrir leikskólaliða til að sjá hvort raunfærnimat er fyrir þig

Næsta skref er að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa sem getur leiðbeint þér um framhaldið.

Raunfærnimat fyrir stuðningsfulltrúa metur reynslu, þekkingu og hæfni á starfi í umræddri grein.

Stuðningsfulltrúar starfa við hlið fagfólks að umönnun, uppeldi og menntun barna og ungmenna með sérþarfir.

Raunfærnimat fyrir félagsliða metur reynslu, hæfni og þekkingu á starfi í umræddri grein.

Starfsvettvangur félagsliða spannar vítt svið félagslegrar endurhæfingar og virkniúrræða fyrir þá sem vegna félagslegra aðstæðna, veikinda, öldrunar eða hvers konar áfalla, þurfa á sérstökum stuðningi að halda.

Hér er skimunarlisti fyrir félagsliða til að sjá hvort raunfærnimat er fyrir þig

Raunfærnimat í fagnámi verslunar og þjónustu er fyrir starfandi verslunarfólk þar sem kunnátta og hæfni hvers og eins og er metin til eininga á móti kenndum áföngum í Verzlunarskóli Íslands.

Fagnám í verslun og þjónustu er 90 eininga og er blandað af fjarnámi og vinnustaðanámi í fyrirtækjum. Hér má nálgast nánari upplýsingar um skipulag námsins:

Hvað kostar raunfærnimat?

Raunfærnimat er þátttakendum að kostnaðarlausu hafi þeir ekki lokið námi á framhaldsskólastigi.

Fræðslusjóður greiðir kostnað fyrir þau sem falla undir markhóp framhaldsfræðslulaga. Sjóðurinn fær framlög í fjárlögum og tryggir þannig að þjónustan sé aðgengileg fyrir þau sem þurfa mest á henni að halda.

Þau sem hafa lokið til dæmis stúdentsprófi, sveinsprófi eða sambærilegri menntun greiða samkvæmt eftirfarandi verðskrá:

  • Grunngjald: 198.000 kr.
  • Viðbót: 2.440 kr. fyrir hverja staðna einingu*

*Samkvæmt verðskrá Fræðslusjóðs

Ef þú ert félagi í stéttarfélagi getur þú sótt um niðurgreiðslu hjá starfsmenntasjóði viðkomandi félags.

Láttu meta reynslu þína

Mímir

Leit