Занятия Мимира продолжаются в онлайн-формате.

Breytingar verða á skólahaldi Mímis í kjölfar ákvörðunar yfirvalda um tímabundið samkomubann og takmarkanir á skólahaldi vegna faraldurs COVID-19. Frá og með mánudeginum 16. mars 2020 til sunnudagsins 12. apríl 2020 mun öll þjónusta Mímis færast yfir á stafrænt form, þar með talið nám og ráðgjöf. 

Allt nám verður fjarkennt

Þrátt fyrir að skólabyggingum Mímis, bæði á Höfðabakka 9 og Öldugötu 23, verði lokað mun skólastarf halda áfram í gegnum fjarskiptatækni í námi, kennslu, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimati. Kennarar og verkefnastjórar munu upplýsa nemendur um breytingarnar, auk þess að búa þá undir þær. Nám og kennsla fer eins og áður fram í gegnum Innu, www.inna.is og þarf íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Starfsmenn Mímis halda áfram störfum og kappkosta að veita góða þjónustu og stuðning við breytingarnar.  

Сообщение о заражении и карантин

Við brýnum fyrir starfsfólki, kennurum og nemendum að tilkynna til öryggisvarðar Mímis, Anneyjar Þórunnar Þorvaldsdóttur [email protected], ef einhver innan skólans greinist með COVID-19 og/eða þarf að fara í sóttkví. Einstaklingar með flensueinkenni sem hafa verið í húsnæði Mímis að undanförnu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við heilsugæsluna sína. Þá er einstaklingum með áhættuþætti fyrir alvarlegri sýkingu COVID-19 bent á að hafa samband við öryggisvörð Mímis.  

Вопросы и предложения

Við hvetjum alla til að fylgjast vel með framgangi mála í fréttum og ef nýjar upplýsingar berast sem hafa áhrif á skólastarfið setjum við tilkynningu um það á vefmiðla skólans. Þá hvetjum við viðskiptavini okkar til að nýta sér stafrænar þjónustuleiðir Mímis og hafa samband við okkur í gegnum netspjall á www.mimir.is  eða á facebook síðu Mímis. Einnig er hægt að hringja í þjónustuver í síma 580 1800 eða senda okkur tölvupóst í gegnum netfangið [email protected]. Við minnum á vefinn okkar www.mimir.is en þar má finna allar upplýsingar um nám, námsbrautir og ráðgjöf, sem og skrá sig til leiks.

Leit