
Церемония вручения дипломов Фонда образования состоялась 10 июня 2026 года
Útskrift Menntastoða fór fram við hátíðlega athöfn þann 10. júní 2026. Þar komu saman útskriftarnemar, aðstandendur þeirra, kennarar og starfsfólk til að fagna þessum merka áfanga í lífi nemenda.
Alls útskrifuðust 22 nemendur, bæði úr staðnámi og fjarnámi, en það endurspeglar þann sveigjanleika í námi sem Menntastoðir bjóða upp á.
Við athöfnina hélt Þórir Björgvinsson tölu, fyrir hönd nemenda, þar sem hann rifjaði upp sameiginlega reynslu nemendahópsins, þakkaði kennurum og starfsfólki fyrir stuðninginn og hvatti samnemendur sína til að nýta þekkingu sína og reynslu á komandi tímum.
Sólrún H. Guðmundsdóttir, verkefnastjóri, flutti stutt ávarp þar sem hún óskaði útskriftarnemum til hamingju með árangurinn og hvatti þau til áframhaldandi náms og þátttöku í samfélaginu. Að því loknu afhenti hún útskriftarnemum skírteini sín.
Athöfnin var hlýleg og hátíðleg og bar með sér stolt, gleði og bjartsýni til framtíðar.
Фонды в сфере образования er vinsæl námsbraut hjá Mími en hún veitir fólki tækifæri á áframhaldandi námi eða nýjum atvinnutækifærum. Útskriftarnemar í ár eru flestir að taka næstu skref í námi og stefna á undirbúningsdeildir háskólanna; Bifröst, HR og Keili eða starfs-, iðn- og tækninám.
Við óskum öllum nýútskrifuðum nemendum innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni.







