มีเมียร์ได้รับทุนสนับสนุนจาก Nordplus สำหรับการพัฒนาโซลูชันดิจิทัลในการเรียนรู้ภาษา

Mímir – símenntun hefur hlotið styrk úr Nordplus Adult áætluninni fyrir alþjóðlega samstarfsverkefnið Play2Work – Gamification for Migrant Language Learning and Employment.

Verkefnið er tveggja ára þróunarverkefni sem unnið verður í samstarfi við Spring House í Finnlandi, VSKdansk í Danmörku og Voksenopplæringen for Øvre Romerike í Noregi. Markmið verkefnisins er að þróa og prófa nýjar leikjavæddar og stafrænar lausnir til að efla tungumálanám fullorðinna innflytjenda og styrkja tengsl tungumálanáms við atvinnulíf og vinnustaði.

Verkefnið miðar að því að þróa nýjar stafrænar lausnir fyrir tungumálakennslu þar sem leikjavæðing, sjálfstætt nám og vinnustaðatengdar aðstæður eru nýttar til að auka þátttöku, áhuga og árangur nemenda. Markmiðið er að gera námið aðgengilegra, sveigjanlegra og meira hvetjandi að taka þátt með því að tengja tungumálanám við raunverulegar aðstæður, jafnt í atvinnulífi og daglegu lífi. Samhliða verða þróuð stafræn verkfæri, kennsluefni og leiðbeiningar sem styðja kennara og fræðsluaðila við að innleiða nýjar og skapandi kennsluaðferðir.

Dagana 8.–9. júní var fyrsti upphafsfundur verkefnisins haldinn hjá Mími-símenntun. Fulltrúar samstarfsaðilanna frá Finnlandi, Danmörku og Noregi komu til Íslands þar sem fyrstu skref verkefnisins voru mótuð. Á fundinum var unnið að skipulagningu verkefnisins, skilgreiningu markhópa, undirbúningi vinnustofa fyrir kennara og atvinnurekendur og rætt hvernig best væri að nýta leikjavæðingu og stafræna tækni til að styðja við tungumálanám og þátttöku innflytjenda á vinnumarkaði.

Samstarfið gefur Mími-símenntun tækifæri til að styrkja enn frekar þróunarstarf sitt á sviði íslenskukennslu, miðla reynslu til norrænna samstarfsaðila og taka þátt í mótun nýrra aðferða sem geta aukið þátttöku, áhuga og árangur nemenda.

Verkefnið stendur yfir frá júní 2026 til maí 2028 og er styrkt af Nordplus Adult-áætluninni.

โฮฟดาบักกิ 9

110 กรุงเรคยาวิก

580 1800

[email protected]

เลขที่ 701202-3920

 

เวลาทำการ

เวลาทำการช่วงฤดูร้อน: วันจันทร์ถึงวันศุกร์ 8:00-15:30

Leit

โฮฟดาบักกิ 9

110 กรุงเรคยาวิก

580 1800

[email protected]

เลขที่ 701202-3920

 

เวลาทำการ

เวลาทำการช่วงฤดูร้อน: วันจันทร์ถึงวันศุกร์ 8:00-15:30