Námskeiðið Íslenska 6 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 5 með góðum árangri eða hefur sambærilega færni í íslensku.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, málfræðinotkun, skilning og talþjálfun í samræmi við þínar þarfir.
• Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
• Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
• Árangursríkar og skemmtilegar kennsluaðferðir.
• Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
• Fjölbreytt úrval námskeiða.
Námskeiðið er einstaklingsmiðað að hluta. Það er byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, auk hópavinnu nemenda.
Íslenska 6 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.2 samkvæmt กรอบมาตรฐานยุโรปสำหรับภาษา. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Það byggir á völdum textum og verkefnum auk efnis af neti og samfélagsmiðlum í samræmi við áhuga og þarfir nemenda.
• Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þínum þörfum.
• Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
• Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku, tjá skoðanir þínar og taka þátt í umræðum.
• Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
• Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.
• Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3, 4 og 5 (200 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á sjötta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected]
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
ไม่แน่ใจว่าจะเลือกหลักสูตรไหนดีที่สุดสำหรับคุณ? ต้องการประเมินประสบการณ์และทักษะของคุณหรือไม่? ที่ Mími เรามีคำแนะนำส่วนบุคคลและช่วยให้คุณค้นหาเส้นทางที่เหมาะสมในการเรียนหรืออาชีพของคุณ.
ที่อยู่อีเมล [email protected]
โทรศัพท์ 580 1800