
Нові та комплексні програми професійної підготовки для працівників сфери охорони здоров’я та соціальної допомоги
Í haust bjóðum við hjá Mími-símenntun upp á nýja og spennandi útfærslu á Fagnámskeiði fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í stað þess að bjóða upp á Fagnámskeið 1 og Fagnámskeið 2 sem aðskilin námskeið verða þau sameinuð í eitt árangursríkt námskeið.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á starfstengda færni, samskipti og sjálfsstyrkingu auk þess sem þjálfun í skilningi og samskiptum á íslensku er stór þáttur í náminu.
Námið er bæði hagnýtt og eflandi fyrir fólk sem starfar við umönnun á heimilum eða stofnunum.
Námskeiðið samanstendur af eftirfarandi áföngum: Samskipti og íslenska á hjúkrunarheimilum, aðhlynning aldraðra og heimilisstörf á hjúkrunarheimilum.
Sjá hér: Starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu – Fagnámskeið | Mímir








