Þróunar- og samstarfsverkefni skipa mikilvægan sess í starfsemi Mímis.
Verkefnin eru bæði innlend og erlend og unnin í samstarfi við fjölbreytt fyrirtæki, stofnanir og sjóði sem styðja við framhaldsfræðslu og menntun fullorðinna.
Samstarfs- og styrktaraðilar innanlands
Mímir tekur þátt í ýmsum innlendum verkefnum sem styrkt eru af helstu sjóðum framhaldsfræðslunnar, þar á meðal:
Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar
Þróunarsjóði innflytjendamála
Auk þess úthlutar Rannís, fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins, styrkjum til viðurkenndra fræðsluaðila vegna íslenskukennslu. Þessi samvinna gerir okkur kleift að þróa fjölbreytta og öfluga fræðslu sem mætir þörfum fólks um land allt.
Erlend samstarfsverkefni
Á alþjóðavettvangi tekur Mímir þátt í verkefnum á vegum:
Erasmus+ og Nordplus
Verkefnin miða annars vegar að því að efla hæfni markhópa framhaldsfræðslunnar og hins vegar að styðja símenntun og starfsþróun starfsfólks Mímis. Náms- og kynningarheimsóknir erlendra aðila til Mímis hafa einnig farið vaxandi og skapa verðmæt tækifæri til samstarfs og miðlunar þekkingar og reynslu.
Áherslur hvað varðar innlend verkefni:
Áherslur hvað varðar erlend verkefni:
Inngilding og íslenskukennsla í Mýrdalshreppi
Markmið:Verkefnið er þróunar- og undirbúningsverkefni sem miðar að því að greina, samræma og efla tungumálastuðning í fjölmenningarlegu samfélagi.
Í verkefninu verður lagður grunnur að stefnu og verkferlum sem styðja við íslenskunám, notkun íslensku í daglegu lífi og starfi í sveitarfélaginu og inngildingu. Lokaafurð verkefnisins verða drög að leiðarvísi með stefnumótandi aðgerðum til að efla íslensku og inngildingu í samfélaginu.
Samstarfsaðilar:
Styrkt af: Þróunarsjóður innflytjendamála
Íslenskuvæn fyrirtæki
Markmið: Íslenskukennsla og stuðningur við íslenskunám á vinnustöðum
Samstarfsaðilar:
Styrkt af: Samstarfs- og nýsköpunarstyrkur til íslenskunáms innflytjenda (Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið)
Gefum íslensku tíma
Markmið: Að efla íslenskukunnáttu og inngildingu starfsfólks á leikskólum.
Í verkefninu verður hannað og innleitt heildstætt íslenskunám á vinnustað, þar sem sérhæft námsefni er samþætt kennslufræðilegri nálgun hjá Mími og Íslenskuþorpinu. Hluti af verkefninu er einnig þjálfun íslenskumentora á vinnustað og fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur um að efla og virkja íslensku í daglegu starfi leikskólanna.
Samstarfsaðilar: Hafnarfjarðarbær og Íslenskuþorpið

Samtal. Samskipti á íslensku í umönnun
Markmið: Að hanna sérhæft starfstengt námsefni í umönnun aldraðra sem hentar fyrir starfstengd íslenskunámskeið á hjúkrunarheimilum. Efnið byggir á smáforritinu Iðunni og sérhæfðu kennsluefni úr umönnun.
Samstarfsaðilar: Helix Health og hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð og Seltjörn
Styrkt af: Þróunarsjóður framhaldsfræðslu
Þróun kennsluefnis fyrir Leikskólasmiðju
Markmið: Að semja og hanna kennsluefni í íslensku fyrir námsbrautina Leikskólasmiðja og íslenska 3. Efnið er þematengt og tengist daglegu starfi með leikskólabörnum.

BRICK
Markmið:
Samstarfsaðilar:
Discover and Empower
Markmið:
Samstarfsaðilar:
Hér eru upplýsingar um nokkur fyrri þróunarverkefni hjá Mími:
Efnið er í vinnslu