Um Mími

Hver erum við?

Mímir-símenntun er fræðslufyrirtæki fyrir fullorðna sem vilja styrkja stöðu sína; í starfi, námi og daglegu lífi. Við vinnum ötullega að því að gera nám aðgengilegt fyrir öll, sérstaklega þau sem hafa haft takmörkuð tækifæri til formlegs náms.

Við bjóðum upp á fjölbreytt nám og námskeið, þar á meðal Menntastoðir, starfstengt nám, íslensku sem annað mál og ýmis tungumálanámskeið. Námið er hannað með þarfir vinnandi fólks í huga – þannig að þú getir lært á þínum hraða og á þínum forsendum.

Mímir-símenntun er í eigu Alþýðusambands Íslands  og hefur starfað frá 2003. Við vinnum samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu og erum með formlega viðurkenningu fræðsluaðila frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Félagið er rekið án hagnaðarsjónarmiða, sem þýðir að allur hagnaður er notaður til að efla menntun og tækifæri fullorðins fólks á íslenskum vinnumarkaði.

Markmið okkar er skýrt: Að opna dyr að námi og styðja fólk í að taka næstu skref.

Einhverjar spurningar?

Hjá Mími eru allar spurningar kærkomnar, hringdu, sendu póst eða komdu í heimsókn.

Leit