
Atvinnulíf framtíðarinnar er ráðgjöfum Mímis hugleikið
Sameiginleg vorráðstefna fyrir félaga Ský, Stjórnvísis og Mannauðs var haldin í apríl og hana sótti Hlín Rafnsdóttir náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri hjá Mími.
Fjölbreyttir fyrirlestrar um framtíðina voru í boði úr mismunandi áttum viðskiptalífsins. Mikilvægt er fyrir náms- og starfsráðgjafa að fylgjast með hröðum áhrifum tækniþróunar á störf. Það er ljóst að sum störf munu hverfa, flest breytast að einhverju marki auk þess sem ný störf verða til. Upplýsingaóreiða getur haft áhrif á störf, til dæmis hvað varðar ákvarðanir og stefnumótun í verkefnum. Samvinna ólíkra starfsstétta verður einnig sífellt mikilvægari til að takast á við flókin verkefni nútímans. Þá er það hlutverk stjórnenda að skapa traust og jákvæðni innan liðsheilda sífellt mikilvægara til að stuðla að sköpun, grósku og jákvæðri vinnustaðamenningu.







