Nám hafið í Menntastoðum hjá Mími

Nám hófst í Menntastoðum hjá Mími 24. ágúst og ánægjulegt er að sjá góða þátttöku nemenda á nýrri önn. Á önninni stunda um 65 nemendur nám í Menntastoðum og skiptast þeir í staðnám að Höfðabakka 9 og fjarnám. Fjarnámið gerir fleirum kleift að sækja námið, óháð búsetu og aðstæðum.

Menntastoðir er vinsæl námsbraut hjá Mími sem er ætluð þeim sem vilja styrkja grunn sinn í námi. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í aðfaranám háskóla (Háskólabrú hjá Keili, Háskólagrunn í HR eða Háskólagáttina hjá Bifröst) eða fara í starfs-, iðn- eða tækninám.

Í náminu fá nemendur tækifæri til að byggja upp þekkingu sína og sjálfstraust í námi, með áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og stuðning við þarfir hvers og eins.

Við hjá Mími bjóðum alla nemendur í Menntastoðum hjartanlega velkomna og hlökkum til að fylgja þeim í gegnum námið. Við óskum þeim öllum góðs gengis í náminu!

Höfðabakki 9

110 Reykjavík

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Opnunartími: Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00

 

Leit