Útskrift úr Fagnámskeiði 2 fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu

Þessi glæsilegur hópur útskrifaðist mánudaginn 29. júní úr Fagnámskeiði 2 fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Námskeiðið er ætlað þeim sem aðstoða eða annast aldraða, fatlaða og sjúka á einkaheimilum eða stofnunum, til að mynda við innkaup, þrif og persónuleg mál.
Á fagnámskeiðum er lögð áhersla á námsþætti sem nýtast starfsfólki bæði í starfi og einkalífi. Þá er fagnámskeið jafnframt undanfari náms í Félagsliðagátt hjá Mími.

Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar stéttarfélags. Þau eru samanlagt 190 klukkustundir.

Við óskum útskriftarnemunum hjartanlega til hamingju með áfangann.

Höfðabakki 9

110 Reykjavík

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Opnunartími

Sumartími: Virkir dagar frá kl. 8.00-15.30

Leit