Ertu ekki viss um hvaða íslenskunámskeið hjá Mími hentar þér best? Stöðumatið okkar hjálpar þér að finna rétta námskeiðið.
Stöðumatið er í tveimur hlutum.
Skriflegur hluti: Skriflegi hlutinn byggist á rafræna matinu Eurotest* sem er bæði sjálfsmat og próf í lestri, hlustun, orðaforða og málfræði. Prófið tekur um það bil klukkustund. Þú færð sendan hlekk á prófið í tölvupósti.
Nánar má lesa hér um Eurotest.
Munnlegur hluti: Munnlegi hlutinn er stutt 10 mínútna viðtal í gegnum fjarfundabúnað.
Verð: Frítt (0 kr.) fyrir nemendur Mímis
Til að fá ókeypis (frítt) stöðumat þarftu að:
1: Skrá þig á íslenskunámskeið hjá Mími.
2: Senda tölvupóst á: [email protected] og biðja um stöðumat.
*Ef þú getur ekki tekið rafrænt stöðumat geturðu tekið skriflegt og munnlegt próf á staðnum hjá Mími, Höfðabakka. Sendu þá tölvupóst á: [email protected]
Eftir stöðumatið færum við þig á annað námskeið ef þörf er á. Þannig tryggjum við að þú farir á námskeið sem hentar þér best.
Til að taka almennt stöðumat í íslensku og greiða 16.000 kr. (ekki skráð/ur á námskeið):
1: Sendu tölvupóst á: [email protected] og skráðu þig í stöðumat í íslensku.
2: Við höfum samband við þig innan viku frá skráningu.
Eftir stöðumat sem er greitt fyrir færðu staðfestingu sem sýnir færnistig þitt í lestri, hlustun, orðaforða, málfræði og tali samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Vinsamlegast athugaðu að staðfestingin er óformlegt skjal sem veitir upplýsingar um íslenskukunnáttu þína á þeim tíma sem matið fór fram. Ef þú ætlar að framvísa skjalinu hjá þriðja aðila er það á ábyrgð hvers fyrirtækis/stofnunar hvort ákvarðanir taki mið af niðurstöðum matsins.
Hjá Mími er boðið upp á próf í íslensku sem hægt er að nýta til umsóknar um ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi.
Staðfestingar frá Mími þar að lútandi eru viðurkenndar af Útlendingastofnun.
Færni í íslensku þarf að vera á stigi A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Verð: 12.500 kr.
Skráningar á á vefsíðu Mímis undir Study Icelandic
Hjá Mími er rekin öflug prófamiðstöð þar sem nemendur í fjarnámi, jafnt í framhaldsskóla sem háskóla, geta tekið próf í húsnæði Mímis. Mímir þjónustar þá skóla við framkvæmd prófa með því að veita fyrsta flokks aðstöðu fyrir nemendur, útfærslu prófahalds og yfirsetu yfir próftökum. Þjónustan nær jafnt yfir símatsdaga sem prófatíðir skólanna.
Mímir er eftirsóttur staður til próftöku fyrir háskólanemendur og hefur fest sig í sessi sem prófamiðstöð.
Helsta samstarf prófamiðstöðvarinnar er við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst um fyrirlögn prófa fyrir nemendur þeirra.
Frekari upplýsingar: [email protected]