Ráðgjafar Starfsfólk

Karen Guðmundsdóttir

Náms- og starfsráðgjafi/verkefnastjóri

Ég veiti ráðgjöf við námsval, aðstoð, stuðning og ráðgjöf í námi. Ég aðstoða einstaklinga við að átta sig á eigin styrkleikum, að efla sjálfstraust sitt og trú á eigin getu til að ná settum markmiðum í námi og starfi. Ég veiti aðstoð við starfsþróun, gerð ferilskráa, kynningarbréfa og undirbúning við atvinnuleit.

Ég er með réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnun Bendils og raunfærnimat. Að vinna að raunfærnimati þjónustubrauta er skemmtilegur hluti af starfinu þar sem það veitir einstaklingum á vinnumarkaði tækifæri til að staðfesta þekkingu sína og færni. Raunfærnimatið eykur trú einstaklinga á eigin getu og getur verið stökkpallur fyrir frekara nám.

Starfsreynsla og menntun

  • Hóf störf hjá Mími árið 2021
  • Ég hef starfað sem náms- og starfsráðgjafi á grunn- og háskólastigi
  • MA gráða í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ
  • Diplóma í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ
  • BA gráða í félags- og mannfræði frá HÍ
  • Leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi
  • Réttindi til að leggja fyrir raunfærnimat
  • Réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnun Bendils

Leit