Học trực tiếp và học từ xa
Học kỳ mùa xuân năm 2027

Cổng thông tin đội bóng

Vinnur þú við umönnun aldraðra, fatlaðra eða við heimaþjónustu?

Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?

Félagsliðagátt er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem félagsliði. Þetta er leið fyrir þig til að skapa þér ný tækifæri á þessum starfsvettvangi.

Học kỳ mùa xuân năm 2027
Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur í fjarnámi þar sem nemendur hitta kennara.
Höfðabakki 9 và hình thức học từ xa
660 giờ (bốn học kỳ)
Giá325.000 kr.

Học tập tại Mími như thế nào?

  • Một môi trường học tập thân thiện, thoải mái và đầy động lực
  • Đội ngũ giáo viên chuyên nghiệp và giàu kinh nghiệm
  • Các phương pháp giảng dạy hiệu quả và sinh động
  • Một loạt các khóa học đa dạng, phù hợp với mọi người.
  • Hỗ trợ và chăm sóc

Félagsliðagátt er sérsniðin námsbraut fyrir þá sem vinna við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu. Í náminu er lögð rík áhersla á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni og að tengja námið við fjölbreytt störf í heilbrigðis- og félagsþjónustu

Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mikilvægi faglegra samskipta: Þjálfaðu skýr og árangursrík samskipti sem byggjast á virðingu.
  • Margbreytileika mannlegra aðstæðna: Dýpkaðu skilning þinn á ólíkum aðstæðum í lífi fólks og mikilvægi þess að sýna fólki virðingu og umhyggju.
  • Öldrunarferlinu: Lærðu um öldrunarferlið og þær breytingar sem fylgja því að eldast í víðu samhengi.
  • Félagslegri þjónustu: Fáðu yfirsýn og þekkingu á helstu þáttum félagslegrar þjónustu og hvernig hún virkar.

Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.

Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.

Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur í fjarnámi þar sem nemendur hitta kennara.

1. önn

Upplýsingatækni F-UPPT2UT
Íslenska fyrir félagsliða F-ÍSLE2TT
Samvinna og samskipti F-SAMS1SS
Öldrun F-ÖLFR1ÖL

2. önn

Enska fyrir félagsliðaF-ENSK2FK
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta F-FSFÞ2FJ
Fötlun F- FÖFR1FÞ
Gagnrýnin hugsun og siðfræði F-SIÐF2GH
Óhefðbundin samskipti F- ÓHSA2ÓS

3. önn

Aðstoð og umönnun F-ASUM2UA
Félagsleg virkni F-FÉVI2FV
Lyfjafræði F-LYFJ2LF
Stærðfræði fyrir félagsliða F-STÆR2EÆ

4. önn
Kynja- og jafnréttisfræðsla F-KYNJ2KG
Næringarfræði F-NÆRG2NF
Hegðun og atferlismótun (sálfræði) F-SÁLF2HM
Skyndihjálp F-SKYN2SP
Valgrein: Öldrun og samfélag F-ÖLFR2ÖS

Námið er fyrir þau sem starfa við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu.

Nhóm đối tượng của giáo dục thường xuyên, theo Hội đồng Quỹ Đào tạo. Điều khoản và Điều kiện của Quỹ Giáo dục

Námið er ætlað einstaklingum sem:

  • Hafa náð 22 ára aldri
  • Eru með a.m.k. þriggja ára starfsreynslu á leik- eða grunnskóla
  • Hafa lokið 140 klst. starfstengdum námskeiðum

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Hjá Mími ljúka nemendur fjórum önnum af sex. Til að útskrifast sem félagsliðar ljúka þeir síðustu tveimur önnunum í framhaldsskóla sem tryggir fullgild réttindi.
  • Námið er 86 framhaldsskólaeiningar.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Tất cả các chương trình giảng dạy đều có thể truy cập tại đây.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.    

Đánh giá năng lực: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi við umönnun getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.

Við hlökkum til að vinna með þér til að ná markmiði þínu.

Bạn có cần giúp đỡ không?

Bạn chưa biết khóa học nào phù hợp nhất với mình? Bạn cần đánh giá kinh nghiệm và kỹ năng của bản thân? Tại Mími, chúng tôi cung cấp dịch vụ tư vấn cá nhân và giúp bạn tìm ra con đường phù hợp nhất cho việc học tập hoặc sự nghiệp của mình.

Địa chỉ email [email protected]

Điện thoại 580 1800

Lời khuyên tại Mímir

Leit