Í morgun þann 24. maí útskrifuðust tíu nemendur úr stigi 2 í íslensku. Við óskum þeim innilega til hamingju. Það sem tekur við hjá þeim nú er val á milli íslensku stig 3 sem er 40 stundanám eða Talþjálfun, stig 2-3 sem er einnig 40 stundir. Talþjálfun er nýjung á sumarnámskeiðum Mímis sem við mælum eindregið með.