21. sep 2026 - 5. okt 2026
Fjárhagsleg heilsa – leið að betri framtíð
Langar þig að ná betri tökum á fjármálunum, spara markvisst og byggja upp öryggi til framtíðar?
21. sep 2026 - 5. okt 2026
Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú einfaldar aðferðir til að bæta fjárhagslega heilsu, fá skýrari yfirsýn og taka betri ákvarðanir um peningana þína.
Á námskeiðinu færð þú svör við spurningum eins og:
• Hvernig heldur þú góðri yfirsýn yfir fjármálin?
• Hvernig byggir þú upp sparnað og varasjóð?
• Hvernig gerir þú einfalda og skilvirka fjármálaáætlun?
• Hvaða greiðsluleiðir, lán og tryggingar henta best?
• Hvernig nýtir þú lífeyrissparnað og önnur úrræði til framtíðar?
• Hvernig setur þú raunhæf fjárhagsleg markmið og lætur draumana rætast?
Kennari námskeiðsins er Þóra Valný Yngvadóttir, fjármálaráðgjafi með yfir 25 ára reynslu af fjármálaráðgjöf, fræðslu og markþjálfun.
Taktu skrefið að sterkari fjárhagslegri framtíð og auknum lífsgæðum.
Þú færð fræðslu og lærir einfaldar aðferðir sem hjálpa þér að taka betri ákvarðanir er varða:
Þetta námskeið er fyrir öll sem vilja öðlast betri skilning á fjármálum sínum til að bæta fjárhagslega heilsu og ná markmiðum sínum.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Þátttakendur fá sendan tölvupóst með öllum helstu upplýsingum viku fyrir námskeiðið.
Lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími: Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00