Útskrift úr námskeiðinu Íslenska. Talþjálfun 3–4 í Engjaskóla

Við í Mími óskum starfsfólki í Engjaskóla sem útskrifaðist úr námskeiðinu Íslenska, Talþjálfun 3–4 innilega til hamingju!

Starfsfólkið sem sótti námskeiðið lagði hart að sér og sýndi mikinn metnað, dugnað og framfarir í að tjá sig á íslensku.

Í gegnum fjölbreytt verkefni, æfingar og samræður hafa þau styrkt orðaforða sinn, bætt framburð og aukið sjálfstraust í samtölum á íslensku. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með hversu mikið þau hafa vaxið – bæði í íslensku og sjálfsöryggi.

Mímir hvetur fyrirtæki og stofnanir til að nýta sér fjölbreytt íslenskunámskeið sem sniðin eru að þörfum hvers vinnustaðar.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Mími [email protected]

Leit