
Aðalfundur Mímis-símenntunar haldinn 18. maí
Aðalfundur Mímis-símenntunar fór fram í húsnæði Mímis að Höfðabakka 9 þann 18. maí sl. Þar komu saman fulltrúar eigenda og stjórnendur til að fara yfir starfsemi ársins 2025 og stöðu félagsins.
Framkvæmdastjóri Mímis, Sólveig Hildur Björnsdóttir, kynnti helstu áherslur og árangur í starfinu á liðnu ári. Þar kom meðal annars fram að rekstur félagsins styrktist og velta jókst um rúm 12%, einkum vegna aukinnar eftirspurnar eftir íslenskukennslu og starfstengdu námi. Þrátt fyrir auknar fjárfestingar í innviðum og tæknilausnum var afkoma ársins jákvæð.
Eftirspurn eftir námi var áfram mikil, bæði meðal einstaklinga og á vinnustöðum, sem endurspeglar mikilvægi framhaldsfræðslu í samfélagi þar sem kröfur til færni eru síbreytilegar. Áhersla var lögð á nýsköpun í kennslu, þróun nýrra námsleiða og aukna notkun tæknilausna til að bæta aðgengi og gæði náms.
Nemendaánægja mældist áfram mjög góð en 93% nemenda voru ánægð eða mjög ánægð með nám og kennslu hjá Mími. Þá var áfram lögð sérstök áhersla á ráðgjöf og stuðning við nemendur, en alls fóru fram 1.747 náms- og starfsráðgjafarviðtöl á árinu. Einnig jókst umfang raunfærnimats og luku 78 einstaklingar slíku mati.
Á fundinum kom jafnframt fram að Mímir tók þátt í fjölbreyttum þróunar- og samstarfsverkefnum, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, með það að markmiði að efla íslenskukennslu, þróa námsefni og styðja við þátttöku fólks á vinnumarkaði.
Endurskoðandi Mímis kynnti ársreikning félagsins og fór yfir helstu niðurstöður hans. Fundarstörf fóru fram með hefðbundnum hætti og voru lögbundin mál afgreidd, þar á meðal samþykkt ársskýrslu og ársreiknings.
Starfsemi Mímis byggir á öflugum mannauði en hjá félaginu störfuðu 23 fastráðnir starfsmenn og 145 kennarar og verktakar á árinu. Jafnframt var áfram lögð mikil áhersla á gæðastarf, umbætur og samfélagslega ábyrgð.
Aðalfundur Mímis er mikilvægur vettvangur til að fara yfir rekstur og starfsemi liðins árs og marka skýra stefnu til framtíðar, þar sem áfram verður lögð áhersla á þróun, tækninýtingu og að efla tækifæri fullorðinna til náms og starfa.









