Fjarnám
Haustönn 2026

Enska 1 og 2

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að öðlast traustan grunn í ensku og fá sjálfstraust til að læra meira. Á námskeiðinu byggir þú upp grunnorðaforða og færð þjálfun í að tala ensku.

Haustönn 2026
Þriðjudagur kl. 17:10-19:10
Fjarkennsla
24 klst.
Verð90.000 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi

Þetta námskeið er hannað fyrir þig ef þú hefur litla eða enga fyrri þekkingu í ensku. Markmiðið er að þjálfa færni í daglegum samskiptum á ensku.

Þú þarft að búa yfir grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.

Þú færð þjálfun í að tjá þig á einfaldan hátt og bjarga þér í daglegu lífi.

Grunnorðaforða  og undirstöðuatriði í málfræði sem er fléttað við efni námskeiðsins á skýran hátt.

Þú byggir upp traustan grunnorðaforða og eflir sjálfstraustið til að læra meira

Þú færð innsýn í ólíkan hreim og menningarheima enskumælandi landa.

Í lok námskeiðsins getur þú átt  í einföldum samræðum sem tengjast daglegum aðstæðum.

Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.

Allt námsefni er á rafrænu formi.

Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgang að tölvu.

Þátttaka krefst ákveðins sjálfstæðis í námi.

Kennt er á ensku og íslensku.

Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.

Það er nauðsynlegt að ná  75% mætingu til að fá skírteini við lok námskeiðsins. Þetta tryggir líka að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.

Athugaðu að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit