Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra japönsku.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning, framburð og tal auk þess sem þú byggir upp sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku og á því er lögð áhersla á hnitmiðaða kennslu.
Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa framburð og færni í samskiptum.
Að kynnast japönsku hljóðstafrófunum „Hiragana“ og „Katakana“
Læra að tjá þig með einföldum hætti
Byggja upp grunnorðaforða sem styður við frekara nám
Kynnast menningu og lífsháttum Japana sem opnar nýjar leiðir í samskiptum
Læra undirstöðuatriði í málfræði sem eru fléttuð við efni námskeiðsins á skýran hátt
Við lok námskeiðsins áttu þú að geta: lesið og skrifað grunnatriði í japönsku stafrófunum, kunna algengar kveðjur og japanskar siðareglur í samskiptum. Einnig að geta átt í einföldum samskiptum á japönsku.
Kennarinn notar ensku til útskýringar í kennslunni.
Kennslubókin Genki I (kaflar 1-2) er notuð.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00