9. jún 2026 - 25. jún 2026
Á þessu námskeiði tölum við japönsku!
Þú heldur áfram að þjálfa talað mál og byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.
9. jún 2026 - 25. jún 2026
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í japönsku eða hafa lokið japönsku 1.
Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á talað mál og samskipti á japönsku.
Að læra enn betur að tjá þig og eiga samskipti á japönsku
Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
Að halda áfram að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði, meðal annars þátíð
Að læra að lesa og skrifa 30 kanji stafi
Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum í Japan
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á japönsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Kennarinn notar ensku til útskýringar í kennslunni.
Kennslubókin Genki I (kaflar 3-4) er notuð.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00