Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra spænsku. Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð þig. Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa færni í samskiptum.
Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á spænsku og búa yfir hagnýtum orðaforða.
Afgreiðsla Mímis [email protected]
Náms- og starfsráðgjöf hjá Mími Skráningarhnappur
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00