Staðnám
Haustönn 2026

Sænska 1 og 2 (A1.2-A2.1)

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref  í að læra sænsku og byrja að tala sænsku!

Á þessu námskeiði tekur þú bæði stig 1 og 2.

Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning, framburð og tal.  Auk þess byggir þú upp lesskilning, orðaforða og málfræði og þjálfar færni í ritun á fjölbreyttan hátt.

Haustönn 2026
Fimmtudagur kl. 17:10-19:20
Höfðabakki 9
24 klst.
Verð90.000 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi

Námskeiðið er ætlað byrjendum í sænsku og á því er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreytta færni í málinu.

Markmiðið er að byggja upp orðaforða og málfræði og þjálfa skilning, tal, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt.

Námskeiðið er sniðið að þörfum nemenda hverju sinni. Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni. Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í sænsku.

Að læra að tjá þig með einföldum hætti og eiga samskipti á sænsku

Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám og nýtist í daglegu líf

Að kynnast menningu og lífsháttum í Svíþjóð

Að læra og undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt

Að þjálfa lesskilning, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt

Við lok námskeiðsins muntu geta átt  samskipti á sænsku og búa yfir og geta notað hagnýtan orðaforða.

Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.

Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni.

Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í málinu.

Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.

Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit