Hjá Mími er hægt að taka almennt stöðumat í íslensku og greiða 16.000 kr. Slíkt stöðumat er fyrir þau sem eru ekki skráð á námskeið hjá Mími.
Ferlið:
1: Sendu tölvupóst á: [email protected] og skráðu þig í stöðumat í íslensku.
2: Við höfum samband við þig innan viku frá skráningu.
Eftir stöðumat sem er greitt fyrir færðu staðfestingu sem sýnir færnistig þitt í lestri, hlustun, orðaforða, málfræði og tali samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Vinsamlegast athugaðu að staðfestingin er óformlegt skjal sem veitir upplýsingar um íslenskukunnáttu þína á þeim tíma sem matið fór fram.
Ef þú ætlar að framvísa skjalinu hjá þriðja aðila er það á ábyrgð hvers fyrirtækis/stofnunar hvort ákvarðanir taki mið af niðurstöðum matsins.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00