Vorfundur símenntunarmiðstöðva haldinn á Húsavík

Dagana 5.–6. maí sl. fór fram árlegur vorfundur framkvæmdastjóra og forstöðumanna símenntunarmiðstöðva á Íslandi. Að þessu sinni var fundurinn haldinn á Húsavík þar sem starfsfólk Þekkingarnets Þingeyinga á Húsavík tók á móti okkur og hafði umsjón með fjölbreyttri dagskrá. Fulltrúar allra miðstöðva víðs vegar af landinu sátu fundinn. Kristín Erla Þráinsdóttir, fagstjóri ráðgjafar og raunfærnimats, sótti fundinn fyrir hönd Mímis og Sólveig Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis, tók þátt í gegnum fjarfund.

Á fundinum var fjallað um lykilhlutverk símenntunarmiðstöðva sem burðaráss í menntun fullorðinna og mikilvægan þátt í samfélagsinnviðum. Sérstaklega var fjallað um hlutverk símenntunarmiðstöðva í íslenskukennslu, aðlögun innflytjenda og þátttöku á vinnumarkaði í samhengi við atvinnustefnu stjórnvalda. Einnig var rætt um mikilvægi þess að tryggja gott aðgengi að náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimati. Þá var lögð áhersla á hlutverk miðstöðvanna í samfélagslegri þátttöku og inngildingu allra.

Að loknum fundi nýttu þátttakendur tækifærið og sóttu opinn fund með forsætisráðherra og ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskólamála. Meðal umræðuefna á þeim fundi var þáttur símenntunarmiðstöðva í íslenskukennslu, aðlögun innflytjenda og virkni á vinnumarkaði í tengslum við atvinnustefnu stjórnvalda.

9 شارع هوفباكي

110 ريكيافيك

580 1800

[email protected]

رقم 701202-3920

 

ساعات العمل

أيام الأسبوع من الساعة 8:00 صباحًا حتى الساعة 4:00 عصرًا

ليت