Ég veiti ráðgjöf við námsval, aðstoð, stuðning og ráðgjöf í námi. Ég aðstoða einstaklinga við að átta sig á eigin styrkleikum, að efla sjálfstraust sitt og trú á eigin getu til að ná settum markmiðum í námi og starfi. Ég veiti aðstoð við starfsþróun, gerð ferilskráa, kynningarbréfa og undirbúning við atvinnuleit.
Ég er með réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnun Bendils og raunfærnimat. Að vinna að raunfærnimati þjónustubrauta er skemmtilegur hluti af starfinu þar sem það veitir einstaklingum á vinnumarkaði tækifæri til að staðfesta þekkingu sína og færni. Raunfærnimatið eykur trú einstaklinga á eigin getu og getur verið stökkpallur fyrir frekara nám.
Work experience and education