Consultants Staff

Kristín Erla Þráinsdóttir

Head of Consultancy and Recognition of Prior Learning

Ég veiti almenna náms- og starfsráðgjöf sem felur  í sér að hjálpa fólki að átta sig á eigin styrkleikum og áhugasviði, efla sjálfstraust sitt og auka trú á eigin getu samhliða persónulegri ráðgjöf.

Ég veiti aðstoð við gerð ferilskráa, kynningarbréfs og undirbúnings fyrir atvinnuviðtöl. Þá aðstoða ég einnig einstaklinga við að tileinka sér bætt vinnubrögð og betri námstækni og tímaskipulag og fylgja eftir markmiðasetningu . Það skemmtilegasta í mínu starfi er að aðstoða fólk við náms- og starfsval.

Ég hef leitt vinnu varðandi raunfærnimat í fagnámi verslunar og þjónustu en raunfærnimat hefur verið í boði hjá Mími frá árinu 2019. Ég sinni einnig starfsþróunarviðtölum þar sem ég aðstoða fólk við að taka ákvarðanir varðandi nám eða stöðu sína á vinnumarkaði og að kanna leiðir til starfsþróunar. Ég er í fyrirtækjateymi Mímis sem veitir fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu um allt sem snýr að því að efla mannauð þeirra með árangur að leiðarljósi.

Work experience and education
Hóf störf hjá Mími símenntun sem náms- og starfsráðgjafi í byrjun árs 2019.

  • MA-gráða í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ
  • BA-gráða í fornleifafræði og safnafræði sem aukagrein frá HÍ
  • A letter of authorisation as a careers and guidance counsellor
  • Right to submit a practical assessment
  • Réttindi til að framkvæma hæfnigreiningu starfa
  • Réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnun Bendils

Leit