Á þessu námskeiði tölum við spænsku! Þú munt halda áfram að þjálfa talað mál og byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í spænsku eða hafa lokið spænsku 1. Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á talað mál og samskipti á spænsku.
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á spænsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Afgreiðsla Mímis [email protected]
Náms- og starfsráðgjöf hjá Mími linkur
Unsure which course is best for you? Need to assess your experience and skills? At Mími, we offer personal guidance and help you find the right path in your studies or career.
Email address [email protected]
Telephone 580 1800