Nuevo curso breve de islandés

Hjá Mími-símenntun er nú í boði hagnýtt örnámskeið (6 klst.) í íslensku sérstaklega sniðið fyrir fólk sem vinnur í ferða- eða veitingaþjónustu og vill byrja að læra íslensku.

Á námskeiðinu lærir fólk algeng orð og einfaldar setningar eins og kveðjur og tölurnar. Þá eru einnig kenndir algengir frasar og skemmtileg íslensk orð sem er hægt að nýta í samskiptum, jafnt við innlenda sem erlenda ferðamenn og í daglegu lífi.

Þátttakendur fá einnig innsýn í algengar venjur í íslensku samfélagi og upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Það er kennt tvisvar sinnum, þrjár klst. í senn og næstu námskeið hefjast 21. september.

Kynntu þér málið! 

Höfðabakki, 9

110 Reikiavik

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Horario: De lunes a viernes, de 8:00 a 16:00

 

Leit