آموزش حضوری و از راه دور
نیمسال بهار ۲۰۲۷

پورتال تیم باشگاهی

Vinnur þú við umönnun aldraðra, fatlaðra eða við heimaþjónustu?

Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?

Félagsliðagátt er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem félagsliði. Þetta er leið fyrir þig til að skapa þér ný tækifæri á þessum starfsvettvangi.

نیمسال بهار ۲۰۲۷
Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur í fjarnámi þar sem nemendur hitta kennara.
هوفداباکی ۹ و آموزش از راه دور
۶۶۰ ساعت (چهار ترم)
قیمت۳۲۵٬۰۰۰ کرون.

تحصیل در میمی چگونه است؟

  • یک محیط یادگیری دوستانه، آرام و تشویق‌کننده
  • معلمان حرفه‌ای و باتجربه
  • روش‌های تدریس مؤثر و پویا
  • مجموعه‌ای متنوع از دوره‌ها برای همه
  • حمایت و مراقبت

Félagsliðagátt er sérsniðin námsbraut fyrir þá sem vinna við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu. Í náminu er lögð rík áhersla á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni og að tengja námið við fjölbreytt störf í heilbrigðis- og félagsþjónustu

Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mikilvægi faglegra samskipta: Þjálfaðu skýr og árangursrík samskipti sem byggjast á virðingu.
  • Margbreytileika mannlegra aðstæðna: Dýpkaðu skilning þinn á ólíkum aðstæðum í lífi fólks og mikilvægi þess að sýna fólki virðingu og umhyggju.
  • Öldrunarferlinu: Lærðu um öldrunarferlið og þær breytingar sem fylgja því að eldast í víðu samhengi.
  • Félagslegri þjónustu: Fáðu yfirsýn og þekkingu á helstu þáttum félagslegrar þjónustu og hvernig hún virkar.

Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.

Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.

Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur í fjarnámi þar sem nemendur hitta kennara.

1. önn

Upplýsingatækni F-UPPT2UT
Íslenska fyrir félagsliða F-ÍSLE2TT
Samvinna og samskipti F-SAMS1SS
Öldrun F-ÖLFR1ÖL

2. önn

Enska fyrir félagsliðaF-ENSK2FK
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta F-FSFÞ2FJ
Fötlun F- FÖFR1FÞ
Gagnrýnin hugsun og siðfræði F-SIÐF2GH
Óhefðbundin samskipti F- ÓHSA2ÓS

3. önn

Aðstoð og umönnun F-ASUM2UA
Félagsleg virkni F-FÉVI2FV
Lyfjafræði F-LYFJ2LF
Stærðfræði fyrir félagsliða F-STÆR2EÆ

4. önn
Kynja- og jafnréttisfræðsla F-KYNJ2KG
Næringarfræði F-NÆRG2NF
Hegðun og atferlismótun (sálfræði) F-SÁLF2HM
Skyndihjálp F-SKYN2SP
Valgrein: Öldrun og samfélag F-ÖLFR2ÖS

Námið er fyrir þau sem starfa við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu.

گروه هدف برای آموزش‌های تکمیلی، به گفته هیئت مدیره صندوق آموزش. شرایط و ضوابط صندوق آموزش

Námið er ætlað einstaklingum sem:

  • Hafa náð 22 ára aldri
  • Eru með a.m.k. þriggja ára starfsreynslu á leik- eða grunnskóla
  • Hafa lokið 140 klst. starfstengdum námskeiðum

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Hjá Mími ljúka nemendur fjórum önnum af sex. Til að útskrifast sem félagsliðar ljúka þeir síðustu tveimur önnunum í framhaldsskóla sem tryggir fullgild réttindi.
  • Námið er 86 framhaldsskólaeiningar.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. تمام برنامه‌های درسی را می‌توانید از اینجا دسترسی پیدا کنید.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.    

ارزیابی شایستگی: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi við umönnun getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.

Við hlökkum til að vinna með þér til að ná markmiði þínu.

کمک می‌خواهید؟

مطمئن نیستید کدام دوره برای شما مناسب‌تر است؟ نیاز دارید تجربه‌ها و مهارت‌های خود را ارزیابی کنید؟ در میمی، ما راهنمایی‌های شخصی ارائه می‌دهیم و به شما کمک می‌کنیم مسیر درست را در تحصیلات یا حرفه‌تان بیابید.

آدرس ایمیل [email protected]

تلفن 580 1800

نصیحت در میمیر

لایت