Vorönn 2026

Íslenska

Almennt stöðumat í íslensku

Hjá Mími er hægt að taka almennt stöðumat í íslensku og greiða 16.000 kr.  Slíkt stöðumat er fyrir þau sem eru ekki skráð á námskeið hjá Mími.

Ferlið:

1: Sendu tölvupóst á: [email protected] og skráðu þig í stöðumat í íslensku.

2: Við höfum samband við þig innan viku frá skráningu.

Eftir stöðumat sem er greitt fyrir færðu staðfestingu sem sýnir færnistig þitt í lestri, hlustun, orðaforða, málfræði og tali samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Vinsamlegast athugaðu að staðfestingin er óformlegt skjal sem veitir upplýsingar um íslenskukunnáttu þína á þeim tíma sem matið fór fram.

Ef þú ætlar að framvísa skjalinu hjá þriðja aðila er það á ábyrgð hvers fyrirtækis/stofnunar hvort ákvarðanir taki mið af niðurstöðum matsins.

Eftir óskum
1 klst.
Verð16.000 kr.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit