Staðnám
Vorönn 2026

9. jún 2026 - 25. jún 2026

Japanska 2 (A1.1)

Á þessu námskeiði tölum við japönsku! 

Þú heldur áfram að þjálfa talað mál og byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði  á fjölbreyttan hátt.

9. jún 2026 - 25. jún 2026

Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:10-19:20
Höfðabakki 9
12 klst.
Verð49.000 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í japönsku eða hafa lokið japönsku 1.

Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði  á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á talað mál og samskipti á japönsku.

Að læra enn betur að tjá þig  og eiga samskipti á japönsku

Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi

Að halda áfram að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði, meðal annars þátíð

Að læra að lesa og skrifa 30 kanji stafi

Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum í Japan

Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á japönsku og getu til að nota  hagnýtan orðaforða af meira öryggi.

Kennarinn notar ensku til útskýringar í kennslunni.

Kennslubókin Genki I (kaflar 3-4) er notuð.

Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.

Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit