Staðnám
Haustönn 2026

Sænska 1 (A1.1)

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra sænsku.

Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.

Næst á haustönn 2026
Fimmtudagur kl. 17:10-19:20
Höfðabakki 9
12 klst.
Verð49.000 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi

Námskeiðið er ætlað byrjendum í sænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð þig.

Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa færni í samskiptum, lesskilningi, ritun og framburði.

Vikuleg heimaverkefni. Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í sænsku.

Að læra að tjá þig með einföldum hætti til að bjarga þér í daglegu lífi

Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám

Að kynnast menningu og lífsháttum Svía sem opnar nýjar leiðir í samskiptum

Að læra undirstöðuatriði í málfræði sem eru fléttuð við efni námskeiðsins á skýran hátt

Að þjálfa lesskilning, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt.

Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á sænsku og búa yfir hagnýtum orðaforða.

Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.

Vikuleg heimaverkefni.

Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.

Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði  haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit