Staðnám
Haustönn 2026

Spænska 1 (A1.1)

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra spænsku. Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.

Haustönn 2026
Höfðabakki 9
12 klst.
Verð49.000 kr.

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi

Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð þig. Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa færni í samskiptum.

  • Að læra að tjá þig með einföldum hætti til að bjarga þér í daglegu lífi
  • Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám
  • Að kynnast menningu og lífsháttum spænskumælandi landa sem opnar nýjar leiðir í samskiptum
  • Að læra undirstöðuatriði í málfræði sem eru fléttuð við efni námskeiðsins á skýran hátt

Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á spænsku og búa yfir hagnýtum orðaforða.

  • Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
  • Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
  • Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
  •  Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.

Afgreiðsla Mímis [email protected]

Náms- og starfsráðgjöf hjá Mími Skráningarhnappur

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit