
Formação conjunta do Portal dos Profissionais de Apoio Comunitário e do Programa de Transição para Profissionais de Apoio à Primeira Infância
Þann 19. júní síðastliðinn var hátíðleg útskrift nemenda úr Ponte entre Educadores da Primeira Infância e Assistentes de Apoio e Portal da Equipa do Clube hjá Mími. Athöfnin var vel heppnuð og ríkti gleði og stolt meðal útskriftarnema, aðstandenda þeirra og starfsfólks Mímis.
Útskriftin markar mikilvægan áfanga í lífi nemendanna, enda er það afrek að ljúka slíku námi samhliða öðrum verkefnum daglegs lífs. Nemendur hafa sýnt þrautseigju og metnað í námsferlinu og eru nú vel í stakk búnir til að takast á við ný og spennandi verkefni á starfsvettvangi sínum.
Við hjá Mími-símenntun óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir ánægjulegt og lærdómsríkt samstarf. Það verður spennandi að fylgjast með þeim blómstra áfram.
Monika Edwardsdóttir, útskriftarnemi úr Félagsliðagátt, tók myndir við tilefnið sem gefa góða mynd af stemningunni og gleðinni sem ríkti á útskriftardaginn.




























