
การเยี่ยมชมจาก Gotland ถึง Mími
Í maí fengum við í Mími heimsókn frá náms- og starfsráðgjöfum frá Gotlandi í Svíþjóð. Heimsóknin var hluti af Erasmus+ verkefni þar sem markmiðið er að kynnast svipuðum störfum fólks í öðrum löndum og taka með sér hugmyndir heim. Gestirnir höfðu sérstakan áhuga á því hvernig náms- og starfsráðgjöf er skipulögð hér á landi og hvernig raunfærnimat er nýtt.
Kristín Erla Þráinsdóttir, fagstjóri ráðgjafar og raunfærnimats, kynnti hvernig ráðgjöfin er byggð upp hjá Mími og hvaða leiðir standa fullorðnum til boða þegar þeir vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði eða fara aftur í nám. Farið var yfir helstu viðfangsefni ráðgjafar, svo sem námstækni, atvinnuleit, raunfærnimat og fagbréf.
Heimsóknin var góð áminning um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í þróun náms- og starfsráðgjafar.







